MagnaVítamín

MagnaVítamín er tilraunaverkefni sem ég setti af stað s.l. haus.  Tímarnir eru mjög í anda kennslu MagnaVita námsins sem ég útskrifaðist úr vorið 2024.

Gleði, styrkur, liðleiki og slökun allt í einum tíma með  skólafélögunum. En nú er opið fyrir skráningu í þessa líflegu tíma fyrir alla sem hafa áhuga.

Hvenær:  Miðvikudaga kl 14-15.30

Hvar: í sal NúnaCollective að Fiskislóð 75 , 101 Reykjavík

Tímarnir: Tímarnir byrja á upphitun og styrktar æfingum með eigin líkama, hér er oft dansað í upphitun fyrir þá sem ekki geta hamið sig af gleði. Eftir þessa gleði róum við okkur niður í jógatímann sem byrjar alltaf með öndunar- og jafnvægisæfingum. Síðan taka við hefðbundnar jógaæfingar og við endum á 20 mín leiddri slökun. Komum úr tímanum endurnærð.

Verð og skráning: Nauðsynlegt er að taka frá pláss í þessa tíma með því að skrá sig með nafni og kennitölu á netfangið kristinsjofnv@gmail.com

Mánaðargjaldið er 10.000,- og er innheimt með greiðsluseðli mánaðarlega.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.